Færsluflokkur: Bloggar

Árans kötturinn

Árans kötturinn tautaði dóttirin áðan þegar hún kom svefn drukkin út úr herberginu sínu um kl 11 að kvöldi.  Nú? spurði ég, ætlaðir þú ekki að sofa til morguns dúllan mín?  Jú það ætlaði hún sér að gera en kattarskömmin henti niður hamstrabúrinuAngry.  Tautandi sótti hún ryksuguna og hreinsaði upp sag og annað sem tilheyrir þessum litlu skepnum.  Aumingja Pétur lá í hnipri inni í húsinu sínu sem er partur af búrinu, og bara skalf.   Slapp ómeiddur frá Kisunni Stjörnu í þetta skiptið.   Annars heldur Stjarna að hún sé hvolpur og eltir mig og Núbíu tíkina þegar við förum út að hlaupa.   Gefst upp fljótlega og snýr við heim með sperrt stýri og skilur ekkert í þessum gassagangi í fóstru sinni og þessum tvífætta eiganda.

Af Tour de Hvalfjörður er það að segja að ferðin tók rétt um 4 klst. Að hjóla 60 km.  Með stoppum.  Ég get ekki sagt að þetta hafi verið áreynslu lítil ferð.... Alls ekki. En mér tókst þetta og er bara hrikalega stolt af því.

Sér í lagi þar sem undirbúningurinn var nánast enginn.  Fór þrisvar út að hlaupa með tíkina sirka 3 km í hvert skipti. (á eftir að mæla hringinn)   Og það eina sem ég reyndi hjól sonarins var að hjóla niður á bensínstöð til að bæta lofti í dekkin.

En núna er frúin komin á bragðið með að hreyfa sig aftur og í kvöld skokkuðum við vinkonurnar tvífætta og fjórfætta  í heilar 55 mínútur á fínu tempói.   Langa hringinn sem við köllum en er ómældur enn.

Þarf að hafa gps með næst og mæla vegalengdina.

 

Ekkert varð hins vegar úr því að fara á Lopapeysu ballið.  Ekki til orka í það.  Nóttin áður gaf sirka 2-3 tíma í svefn, vegna galsa og gríns ungs fólks sem tjaldaði í næsta garði og líka 2 vinir dótturinnar sem tjölduðu í okkar garði.

Laugardagsnóttin var mun rólegri hjá unga fókinu, nema að ég hafi bara sofið fast 

 


Home sweet home

Eftir yndislegt ferðalag með vinkonu minni og strákunum okkar komum við heim seinnipart gærdagsins.

Við fórum austur hringinn byrjuðum á að sækja minn herramann á Selfoss, en þar beið hann hjá föður sínum og stóra bróður.  Þaðan héldum við í Loftsalahellir en vegna varps í Dyrhólaey þá var hún lokuð.  Loftsalahellir er gamall þingstaður Mýrdælinga. Flottur hellir á pöllum.  Eftir skruppum við í Reynisfjöru sem er í miklu uppáhaldi hjá mér.  Auðvitað var svo kaffi í Víkurskála og litið við í Víkurprjóni, þar keyptum við mæðginin okkur spil með íslenskum fuglum. Spiluðum þó nokkuð marga veiðimenn í ferðinni og báðum um Súlu, Skógarþröst og Fálka í stað hinna hefðbundnu.

Fyrstu nóttinni eyddum við svo á Geirlandi á Síðu.  Rosalega falleg og góð gistiaðstaða þar. Eftir dekur morgunmat á Geirlandi héldum við svo af stað aftur og stoppuðum við Foss á Síðu, Dverghamar og auðvitað á Núpsstað skoðuðum bænahúsið og staðinn sjálfan, jeppinn var náttúrulega lang flottastur, ég sagði strákunum allar þær sögur sem ég gat romsað upp og reyndi að uppfræða ungdóminn sem mest. Ekki alltaf við mikinn fögnuð eða mikla trú á gamlar þjóðsögur.   Héldum áfram yfir Skeiðarársand alger eyðimörk var upplifun Gabríels, en Þrösturinn minn hefur farið þarna oftar um og hlustað á móðurina segja sögur af jökulhlaupum og gosum í jöklinum.  Skýin skyggðu á fjallasýn því miður svo að ekki sáum við Hvannadalshnjúkinn í þetta skiptið.  Skaftafell var næsta stopp og tekinn göngutúr upp að Svartafossi, ekki allir svaka kátir með það en í rólegheitum röltum við Þröstur þetta í humátt eftir Þóru og Gabríel.  Niður aftur og áfram var haldið í einum rikk í Jökulsárlónið.  Stoppuðum þar stutt, og beint á Höfn og tekin olía á bílinn og kaffiáfylling á okkur dömurnar.  Endurnærð héldum við í Lón. Skoðuðum steina og keyrðum þar inn eftir í litadýrð Líbarítsins.  Héldum svo ferðinni áfram í Breiðdalinn þar sem næstu þrjár nætur voru pantaðar.  Fengum þar þetta líka fína sumarhús fyrir okkur.  Í rigningu á mánudegi skelltum við okkur í sund á Djúpavogi. Þar er að mínu mati besta innisundlaug landsins.  Heitir innipottar en samt ekki bergmál og gufa eins og víðast.  Vel heppnuð íþróttamannvirki þar.   Þriðjudaginn 17 júní fórum við svo á Stöðvarfjörð og skoðuðum Steinasafn Petru.  Þangað vorum við báðar að koma í fyrsta skipti og vorum svo sannarlega eins og litlar stelpur að bíða eftir jólunum.  Safnið er í einu orði Stórfenglegt.  Og móttökurnar sem ungu konurnar barnabörn Petru gáfu okkur voru hlýjar og heimilislegar.  Takk fyrir okkur.  Ég á svo sannarlega eftir að koma þangað aftur og skoða miklu betur, ég lærði meira um steina í þessari heimsókn en af öllum lestrinum í steinabókum sem ég hef komið höndum yfir hingað til.  Tók helling af myndum líka og versluðum okkur hálsmen mæðginin og okkur til mikillar skemmtunar þá völdum við bæði Mosaagat steina um hálsinn.  Svakalega ólíka samt.  Við keyrðum svo áfram yfir á Fáskrúðsfjörð, stoppuðum við Vattanes, en þar ólust foreldrar vinkonu minnar upp. Fundum fallega steina við Vattanesið og héldum glöð í bragði áfram á Reyðarfjörð.  Ákváðum að fara göngin til baka í bústaðinn.   Morguninn eftir var haldið á Egilsstaði.  Tókum þar útúrdúr og skelltum okkur upp á Kárahnjúka, í slyddu tókum við þar myndir yfir lónið, fengum okkur svo kaffi í miðstöðinni þar, en hún var einmitt opnuð daginn áður. Ekkert smá heppnar þar.  Keyrðum til baka "öfugumegin" við Lagarfljótið, eftir að hafa skoðað kirkjuna á Valþjófsstað. þó aðallega hurðina.

Eftir stutt stopp í Kaupfélagi Héraðsbúa var brunað að Mývatni þar sem næsti gististaður beið.  Fórum samt fyrst í bað í Jarðböðunum við Mývatn.  Það var bara geggjað.  Frábært að geta slakað svona vel á eftir mikla keyrslu.  Eftir góða næturhvíld skoðuðum við Dimmuborgir, Dettifoss, Hljóðakletta og rétt kíktum á Ásbyrgi.  Þurftum að vera komin á Húsavík fyrir klukkan 6.  En þar voru drengirnir mest spenntir fyrir að skoða Reðursafnið.  Þeim fannst þetta eiginlega of vísindalegt safn.  Gaman að hafa skoðað þar engu að síður.  Akureyri var svo loka stoppið.  Við ákváðum að slaka þar bara vel á og tékkuðum okkur inn á gistiheimili í þrjár nætur.  Lágum í sundi, kíktum á Jólagarðinn, röltum um og strákarnir fóru í bíó. Í einni gönguferðinni rákumst við Þröstur á ofsalega flott gallerí með varning sem ég  hef hvergi séð annarstaðar. ICENATIVE er nafnið og fjöllistakonan Þórey er snillingur í höndunum.  www.midnight1977.com er linkurinn hennar.

  Heimferðin var svo með stoppi á Hvammstanga, þar kíktum við á gallerí Bardúsa  (Ekki Bóthildi eins og ég gerði mig seka um að kalla þetta ljómandi fína handverks hús) og verslunar safnið ætluðum að kíkja á Selasafnið en aðgangshörð Kría hélt gestum frá. 

Þegar heim var komið tóku á móti okkur glaðir fjórfætlingar sem biðu heima með heimasætunni. Hún var líka kát að fá mömmzluna sína og litla bróðir. Þetta er leiðinlegt til lengdar að vera ein heima og hafa engan til að elda fyrir sig  InLove

Set inn myndir við tækifæri. 

Svo er litli minn að fara með pabba sínum og fjölskyldu til Portugals í tvær vikur. Verður gaman fyrir stákinn enda spenntur eins og vera ber Grin


Eftir helgar bloggari

Ég sé að ég er með afburðum lélegur bloggari Blush  Eiginlega svona "eftir helgar bloggari".  Og meira að segja svona í seinna lagi núna. 

Allt á sinn tíma.  

En ég átti enn og aftur yndislega helgi. Á Föstudag mætti frumburðurinn í heimsókn, stoppaði bara vel og lengi.  Borðuðum auðvitað Mömmu Pizzu og fékk sá stóri eina óbakaða með sér á Selfoss, sendi svo frábært sms á sunnudag til að segja mömmu að enginn matur tæki pizzunni fram sem hann fékk sér þá.  Það er alltaf jafn frábært að fá svona hrós sem koma frá hjartanu.  Takk Davíð minn, Knús á strákinn minn.

  Á laugardaginn fékk ég líka alveg frábæra heimsókn.  Elsta vinkona mín af öllum kíkti í Nýhöfnina  InLove Það var bara yndislegt að fá þig í heimsókn og spjall Erla mín. Og já við verðum að fara að safna gamla genginu aftur saman.  Það er sko ekki spurning.  Svo tóku við fegrunarverkefni af öllum toga.  Sláttur var að vísu á föstudag, en fúgavörn á lista sem smátt og smátt fegra glugga Nýhafnar, afhreinsun á lausri málningu og fúgavörn hélt áfram sem og persónulegar meðferðir á ættingjum og vinum eru alltaf jafn skemmtilegar.   Lýður Sigga og Úlfar kíktu í kaffi og smá beauty á sunnudag.  En á meðan var hann Hreiðar minn að laga einn gluggann fyrir mig.  Yndislegt að hafa svona hjálpfúsan mann innan handar.

Þrösturinn minn tjaldaði svo úti í garði í gær.  Og gerðu þeir bestu vinirnir tilraun til að sofa í tjaldinu í nótt en gáfust upp og Gabríel fór heim, en tilraun tvö í kvöld,og þá  Núbía ekki að fá að vera inni í tjaldi, enda frekar plássfrek prinsessan. 

Ég sjálf hef verið heima í aumingjagangi mánudag og þriðjudag, en mæti gallvösk til vinnu á morgun, höfuðverkur og beinverkir geta ekki haldið manni í festum mikið lengur, ekki þegar viku sumarfrí er framundan.  

Dekurferð um landið með heimsins bestu vinkonu og strákunum okkar.  Bara til að njóta lífsins og náttúrunnar á okkar hátt.  Það toppar það fátt í mínum huga.  Steinar og myndavél.  bara tilhlökkunarefni.

Annars er kvöldsólin búin að bjóða upp á sjónarspil á nánast hverju kvöldi í vor og sumar.  Skelli inn einni sem ég tók í fyrrakvöld til að fegra þessa færslu. Sólarlag 8 júní 08  betri


Helgarverkin

Mikið svakalega átti ég fínan dag í dag.

 Fór reyndar í gær og keypti innimálningu á eldhúsið, en hún má bíða eftir rigningunniShocking

Svo í dag þegar ég sá hvað veðrið var yndislegt þá ákvað ég að fara að halda áfram við að fegra húsið mitt.  Aðaláhugamál frúarinnar í Nýhöfn núna.  Setti stefnuna á að hreinsa lausa málningu af gluggalistunum á svefnherbergjunum okkar mæðgna en á endanum var ákveðið að skipta frekar um lista þó að þessir sem eru á kjallaranum séu ekki ónýtir enn, þá setti fyrri eigandi svo mikið af einhverskonar kítti sem er að morkna við rúðurnar.  Fékk prufur af listum og þéttiköntum  til að reyna við.  Nóg fyrir tvo glugga. Svo var bara byrjað á herlegheitunum.  Náði næstum því að klára gluggann hjá dótturinni, en mesta vinnan var að skrapa upp kíttis leifar af glugganum.  Nýju listarnir eru bara rosa flottir og svo er bara að klára þennan og  næsta glugga á morgun. 

En svo þarf að fara í byggingarvöruverslanir og kaupa meira efni og svo er á fjárlögum að versa eitt stykki borvél Errm En ég bræddi úr snúruvélinni minni á laugardaginn síðasta og get ekki treyst á battarýis garminn lengur.  Kaupi mér bara eina alvöru núna. Sem dugar svona húseiganda með framkvæmdaþörf Whistling
Annars ætla ég að gera þetta svakalega skipulega núna.  Byrja á Vesturhlið hússins, á kjallaranum færi mig svo upp í stiga á miðhæðina, svo enn hærra til að græja gluggann á risinu.  Hrikalega hátt fyrir litla konu.W00t En auðvitað geri ég þetta sjálf svona að mestu leiti.  Fæ ráðleggingar hjá mér fróðari eins og venjulega.

Frétti líka að bíllinn minn er alveg að verða rosa flottur. Þökk sé Bjarna og Lýð.  Þúsund þakkir strákar mínir.  Þá er bara að koma garminum í gegnum skoðun, svo að ekki verði límdur miði á hann aftur.

Stákarnir mínir eru í hristinginum á Selfossi en dóttirin skellti sér í útilegu með vinum sínum á vestfirðina.  Heyrði í henni áðan, mikið gaman hjá þeim og allir kátir.  Bíllinn ógeðslega skítugur eftir aksturinn vestur á Patró. 

 


Mikið er ég fegin að hafa flutt frá Selfossi

Já mikil lifandi ósköp er ég fegin að hafa flutt frá Selfossi núna. Það verð ég að segja alveg eins og er.

Bræður mínir tveir og fjölskyldur þeirra búa á Selfossi og ég er búin að heyra í þeim báðum og skemmdir töluverðar hjá þeim.  Elsti sonurinn minn minn býr þar líka en honum líður vel og vill ekkert vera að koma heim til mömmu því að þetta sé ekkert mál.

Ég var stödd í Kópavogi uppi á annarri hæð inni á hársnyrtistofu þegar ósköpin dundu yfir, mér fannst það bara alveg hellingur.  Speglar hristust og nötruðu og á snyrtistofu í sama húsnæði heyrðist brothljóð.  Ljósakrónur sveifluðust og fólk sem þarna var inni var virkilega brugðið.

Það fyrsta sem ég gerði þegar ég kom út í bíl var að hringja í Davíð á Selfossi, hann gerði lítið úr þessu og sagði að ein flaska og mynd/stytta hefði brotnað. Annað ekki.  Svo heyrði ég í honum seinna í kvöld og þá fékk ég að heyra að þetta væri svolítið meira úti í bæ heldur en í húsinu hjá þeim feðgum sem er í nýju hverfi á Selfossi.

Hér á Akranesi var Þröstur yngri sonur minn að skella örbylgjupoppi í örbylgjuofn heima hjá vinum okkar. Og um leið og hann setti í gang hristist allt og skalf.... Vá lætin í ofninum maður Wink

Svo var  horft á fréttir og við bæði erum sammála um að vera sátt og sæl á Skaganum.

Annars er pabbahelgi framundan hjá mínum manni svo að hann sér vegsummerkin á Selfossi, og kannski ég skelli mér bara austur með hann.  Ef þörf er á aðstoð við að laga til hjá vinum og vandamönnum.  Þá er ég til. 


Líf eftir Júróvísíon

Jæja þá er Júróvísíon búið og 14 sætið bara ósköp ljúft.

Mér finnst nú alltaf jafn fyndið að hlusta á Íslenska þulinn með athugasemdir um fyrirsjáanlega stigagjöf.  Það er staðreynd að ALLAR þjóðir standa í hrossakaupum í þessari keppni.  En Regína Ósk og Friðrik Ómar stóðu sig með prýði eins og við var að búast. Til hamingju með það.

Í blíðunni í dag þá var yndislegt að geta bara verið úti.  Ég fékk lánaða sláttuvél og við sonurinn tókum okkur til og slógum garðinn og hirtum í 4 ruslapoka, hey, sinu og túnfífla sem nóg er af í lóðinni minni.    Verkefnin eru fjölmörg sem í boði eru í sambandi við svona hús og lóð.   Enda ætla ég að njóta þess að dunda mér við verkefnin. 


Háþrýstiþvottur

Ég brá mér í búð í gær og keypti þarfaþing húseigandans.  Háþrýstidælu.  Rauða rosa flotta InLove

Svo í eftirmiðdaginn í dag var græjan prufukeyrð á girðingunni hér fyrir framan Nýhöfn.  Gömul steingirðing sem farin var að flagna all verulega.  Margar svona eins steingirðingar hérna á Vesturgötunni.  Græjan virkaði auðvitað eins og hún á að gera svo að frúin hélt náttúrulega áfram og fór að fletta málningu af húsgrunninum.  Húsið er farið að vera ansi skellótt eftir hamaganginn og nú er bara að fara að skoða litasjpjöldin og ákveða hvaða litur hæfir svona fallegu gömlu húsi.  Bárujárnið er líka farið að láta á sjá svo að þar má líka taka til hendinni eftir saltbruna, skrapa upp það ryð sem er komið og menja í sárin í það minnsta þetta sumarið.  Annars er þetta bara eðlilegt viðhald fyrir hús sem byggt var 1924.  Og12.05.2006 013 auðvitað má ekki gleyma að þetta hús fékk viðurkenningu frá Akranesbæ fyrir gott viðhald og uppbyggingu. 

Mér leiðist heldur ekki svona dund.  En ætla að gefa mér tíma til að skoða litaspjöldin vel og taka ákvörðun um litasamspil.  Vanda valið. Ekki gert á hverju ári að mála húsið að utan.

Skellti inn einni mynd af slotinu séð frá garðinum. 

Sonurinn vill mála það rautt, ég er nokkuð sammála honum hafa grunninn í ljósgráum lit og hvíta glugga og hurðir....   Allar tillögur vel þegnar... Bara ekki gult með grænu.... Dóttirin bannar það Sideways


Ofsaakstur á þjóðvegum.

Það er ótrúlegt hvað þessi Laugavatns vegur er oft misnotaður.  Að keyra bíl á 170 km hraða þarna er brjálæði.  Vegurinn er nánast einbreiður, mishæðóttur og hlykkjóttur. 

Oft hef ég líka heyrt þá sögu hafða eftir Ólafi Ketilssyni að honum fannst jú gott að fá malbikið. En hvenar verður leiðin til baka gerð?  er sagt að hann hafi haft á orði.

En þetta er ekkert ný bóla að þarna sé ekið allt of hratt.  Fórnarlömb slysa á þessum vegi sem og öðrum eru allt of mörg. 

Hemjum okkur á bensíngjöfinni. 


mbl.is Tekinn á 170 km. hraða á Laugarvatnsvegi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að láta sér detta þetta í hug!!

Ég bjó nú á Njálsgötunni í 3 ár. Á efri hæð í tvíbýli.  Og fyrir utan stofugluggann minn og rétt fyrir utan svalirnar var stórt og mikið Reynitré.  Þetta skyldi þó ekki vera sama tré og sömu svalir.  En meðan ég bjó þarna voru það bara kisurnar sem príluðu í tréinu í eltingaleik við fuglana.Whistling
mbl.is Telur sig vita hverjir stóðu á bak við árásirnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rok

Það er nú búið að blogga heilmikið um veðrið á Kjalarnesi síðustu tvo daga. Svo að ég bæti bara við einu.

Eins og þeir sem til mín þekkja vita þá er ég ein af bílstjórunum sem ferðast þarna um tvisvar á dag.  Í gærmorgun þegar ég keyrði fram hjá vindmælinum hérna á Akranesi stóð að vindkviður væru í 36 metrum á Kjalarnesi. 

Auðvitað renndi ég nú samt í vinnuna á litla græna Dihatsu.  Kjalarnesið var nú bara allt í lagi en þegar komið var niður í brekkuna ofan í Kollafjörðinn þá fyrst tók í bílinn.  Ég var hræddust um að druslan myndi springa í loft upp í hamaganginum sogið og krafturinn í Kára var þvílíkur.... 

Það kom mér heldur ekkert á óvart að sjá leifarnar af hjólhýsinu þegar ég keyrði svo heim í 31 meter skv. skiltinu í Mosó.  Í ljósi þess að litli minn skókst og hristist um morguninn, þá höfðu kviðurnar aukist upp fyrir 40 metrana þarna um miðjan daginn.  Þar stóð líka húsbíll sem hafði hreinlega verið snúið með nefið upp í vindinn úti í vegkanti og móa.  En ekkert virtist ama að þar.

Ég verð að viðurkenna að þegar ég renndi svo í bæinn í morgun og skiltið sýndi BARA 25 metra að mér var stórlega létt. Ekki síst vegna þess að Dihatsu er í viðgerð hjá eigandanum á höfuðborgarsvæðinu og ég tók strædó heim.   Strædó hristist nú dulítið á leiðinni og á Kjalarnesi var ekki hægt að opna afturdyr vagnsins vegna veðurs, bara allir út að framan í kvöld.

Við skulum bara vona að vorhretið fari að hætta svo að allir komist nú ferða sinna hvert á land sem er.

 


Næsta síða »

Um bloggið

Haddý

249 dagar til jóla

Höfundur

Hallfríður Jóna Jónsdóttir
Hallfríður Jóna Jónsdóttir
Hársnyrtir og áhugamanneskja um náttúruna landið og útivist.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Seljalandsfoss
  • Bleikur himinn í Þjórsárdal
  • Þjórsárdalur
  • Traktorarallý á Flúðum
  • Núbía á fullu í steinabjörgun

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband