11.4.2008 | 23:16
Ekkert er fegurra en...
Vorkvöld í Reykjavík var einu sinni sungið um. En mikil ósköp var nú fallegt sólarlagið hérna yfir Krókalónið núna í kvöld.
Já ég er þeirra forréttinda njótandi að hafa sjálfan Snæfellsjökulinn og fjallgarðinn á Snæfellsnesinu í bakgarðinum, eða svo að segja. Purpurarauður í fjarskanum, umvafinn dulúð. Myndin með var tekin fyrr á árinu en sýnir glöggt hvað ég á við.
Almennt séð finnst mér fátt fegurra en sólarlagið á vorin. Kyrrðin og róin sem færist yfir náttúruna er ólýsanleg. Vona að ég nái fallegu skoti og set það þá inn ásamt fleiri myndum.
En svona í framhjáhlaupi. Eyþór Ingi eða Arnar? Ekki vafi í mínum huga hvor er betri. En hvor á að fá söngvarastöðuna hjá Bubba. Það er spurning sem verður gaman að fá að sjá svarið við.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
7.4.2008 | 23:34
Hrakfallabálkur ?
Hvernig væri nú að fara að nota þetta blogg mitt.
Mér datt í hug hvort að það kæmi ekki til greina að skrifa sig út úr aula skap.... Því að mér virðist einkar auðvelt að ná mér eymsli og áverka þessa dagana
Ég hef nú alltaf verið nett "brussa" og þeir sem til mín þekkja kippa sér lítið upp við þó að ég sé með harðsperrur á ólíklegustu stöðum í líkamanum.... En það er bara gott og blessað.
Síðustu dagar eru nú samt búnir að toppa margt.....
Fimmtudagskvöld; Tíkin mín hún Núbía var að togast á við vin okkar hérna inni í eldhúsinu mínu og auðvitað sat ég og skemmti mér við tilburði beggja við að snúa upp á kaðalinn svo að hitt missti taks... Ekki vildi samt betur til að þegar snúningarnir urðu tíkinni um of að spottinn hafnaði við hnéið á mér með þvílíkum smell...... Fyrst kom kúla, svo þegar hún hjaðnaði varð eftir þessi fagurblái marblettur á stærð við Senseo kaffi púða En það er nú samt allt að grænka og verða brúnna núna og minna tjón á mér en á sálartetri vinarins.
Svo í gær morgun (sunnudag) vaknaði ég með "yndislegan" hálsríg og gat ekki snúið höfðinu til hægri né vinstri.... ÓK einn enn vöðvabólgu dagurinn hjá mér. Ekkert frumlegt við það. En ó nei.... Heldur bætti nú í þegar kaffinu var skolað niður og ristaða brauðið átti að tyggja. Blessuð bólgan í hálsinum náði upp í kjálka.... arg... Jæja, ekkert við því að gera, bara passa upp á að narta bara í brauðið með framtönnunum og gleypa svo. Var búin að lofa vinkonu minni að vinna fyrir hana í Nefertiti sem ég gerði auðvitað með mikilli ánægju.
Dagurinn í dag var í engu frábrugðinn varðandi kjálkaverkina.... Narta í morgunmat og hádegis samlokuna í bílnum..... Pantaði mér tíma í nudd hjá einni frábærri og kemst að á fimmtudags morguninn kl 8. Og ég hlakka ekkert lítið til. Hún hefur gert kraftaverk á vöðvabólgunni minni fyrr... en ég ekki haldið áfram né hlítt því að vera stillt. Svo að alltaf sigli ég í sama farið aftur og aftur.
En svo í kvöld þurfti ég að skjótast út í Samkaup hérna á Akranesi... Kaupa brauð í skólanestið fyrir drenginn minn.... Ég smeygði mér í vinnuskóna, með smá hæl... voða pæja . Út í KIA og brunaði áður en búðin lokaði... Engin slys á leiðinni né heldur á meðan ég verslaði.... Gott mál.
Það er eitt lítið þrep niður þegar farið er út úr búðinni, ég vissi alveg af því enda oft búin að skreppa þarna inn í svona erindum. En þegar ég ætlaði að fara að ganga virðulega út úr búðinni, hurðin lokaðist á eftir mér náði ég að þvæla fótunum einhvernvegin saman og datt á hendur og hné við hliðina á KIA. Úff Á og vont.... Klöngraðist á lappirnar og YES það var enginn úti að horfa á mig.... Inn í bíl og heim.... Með hrufluð hné og lófa aumt bak en það besta við þetta er að. Fallið var örugglega mjög fagmannlegt.
Verður fróðlegt að sjá hvað morgundagurinn ber í skauti sér.... Fljótandi fæði??
Ég renni að sjálfsögðu í bæinn eins og venjulega til vinnu. Miðbærinn er svæði morgundagsins.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.2.2008 | 21:13
Ótrúlegur
Víðir Freyr þú ert nú bara ótrúlegur...
Það er ekki langt síðan þú lentir í þessum svakalegu bílslysum og nú þetta.
Láttu þér batna drengur.
Bestu kveðjur til fjölskyldunnar
Baráttukveðjur Haddý
Heyrði hálsinn brotna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.12.2007 | 13:15
Fjallaferðir
Sumar af mínum bestu upplifunum eru tengdar fjallaferðum. Bæði að sumri og vetri.
Í morgunsárið í gær var til dæmis stórkostlegt að horfa til fjallanna og láta sig dreyma um að vera á ferðinni á Langjökli og Skjaldbreið freistaði líka. EN miðað við hvernig veður er búið að hegða sér í allt haust og vetur þá var draumurinn nóg fyrir mig. Af fenginni reynslu af veðráttunni hér á landi þá treysti ég óveðurspám og fer ekki fet ef spáð er stormi á næstu dögum.
Vonandi gengur bara vel að ná þessu fólki niður af Langjökli. Og ég bara vona að þau læri af reynslunni og taki mið af veðurspám og líka því að hlánun og rok geta farið fyrr yfir en bjartsýnustu spárnar gera ráð fyrir.
Ég kaupi ekki mikið af flugeldum en ALLTAF kaupi ég þá af björgunarsveitunum, Maður veit aldrei hvort að þurfi að kalla þá út fyrir mann sjálfan einhvern daginn og mér finnst ágætt að setja smá inneign til vara.
Gleðilegt nýtt ár.
Unnið við erfiðar aðstæður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
25.12.2007 | 15:51
Jólasnjórinn
Já blessaður jólasnjórinn hefur sínar afleiðingar.
Ég fór í matarboð til systir minnar í höfuðborginni í gærkvöldi og það var orðið ansi sleypt á bakaleiðinni. Þó mætti ég snjóplóg með salt í Kollafirðinum en svo um leið og komið var upp úr göngunum Akranes megin tók við yndislegur hvítur vegur.
Í dag fór ég svo í góðan göngutúr í snjónum. Tíkinni minni til mikillar ánægju.
Förum varlega í umferðinn svo að jólin verði öllum gleðileg.
Harður árekstur á Kjalarnesi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.11.2007 | 19:01
Stórkostleg lög
Það er bannað að deyja í þinghúsinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.11.2007 | 04:24
Ég keypti
einn karl, reyndar konu . af ungum björgunarsveitarmönnum sem stóðu vaktina á Akranesi í dag.
Mér finnst Ólafur Ragnar algerlega frábær fyrirmynd með því að taka þátt í sölunni á þennan hátt.
Forseti Íslands seldi vel af Neyðarkalli björgunarsveita | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.10.2007 | 10:21
Í miðborginni
bjó ég nú í þrjú ár. Fór alveg hreint ágætlega um mig sem íbúa, en þegar maður er kominn í frelsið á landsbyggðinni aftur þá er engin löngun til að snúa aftur.
Það sem mér fannst ógeðslegast var að koma út árla morguns og daunn öl og hlands lá yfir öllu. Nokkrum sinnum benti ég karlmönnum sem stunduðu að míga utan í bílinn minn og ruslatunnurnar við húsið, að í minni sveit væri þetta yðja unda.
Í dag stunda ég vinnu á höfuðborgarsvæðinu en bý utan þess. Og er þeirri stundu fegnust þegar ég bruna út úr Mosfellsbænum í áttina heim.
Hefðbundin nótt í borginni - hávaði, ölvun og pústrar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.10.2007 | 11:38
Að vera "nýbúi"
Ég er búin að búa á Akranesi núna í rétt rúman mánuð. Kann virkilega vel við það og uni hag mínum mjög vel.
En í gærkvöldi upplifði ég það að fara á ball hérna og þekkja varla sálu Ég og dóttirin skelltum okkur á Okoberfest- uppskeruhátíðina hjá Skagamönnum. Og í alvöru sagt þá voru þarna 3 aðilar sem ég hef nokkurn tíman talað við. Og það var vinnutengt eða tengdist fasteignakaupunum mínum.
Við mæðgur skemmtum okkur konunglega, höfðum gaman af þeim sem stóðu vörð um aldurstakmörkin. En ökuskýrteini dótturinnar var skoðað vel og vandlega, kallaður til annar dyravörður til að úrskurða um hvort að réttur aðili væri á ferð Mér fannst þarna vel að verki staðið og þegar þau voru búin að úrskurða að þetta gæti staðist, þá sagði ég að þetta væri rétt stelpa enda dóttir mín.
En daman mín ákvað að skella sér í Fjölbrautarskólann hérna á Akranesi til að kynnast krökkunum á staðnum, og ég varð enn ákveðnari í að finna vinnu hér á staðnum bæði til að sleppa við aksturinn í bæinn og eins til að vera ekki "alger nýbúi" lengur en þörf er á.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.9.2007 | 12:19
Viðbragðsflýtir.
Núna síðasta mánuðinn hef ég tvisvar þurft að sinna "útkalli" dóttur minnar þegar hún hefur lent í árekstrum. Í annað skiptið var það smávægilegt þó svo að stærðarmunurinn á bílunum hafi verið mikill. Það óhapp átti sér stað innan höfuðborgarsvæðisins,þar sem við bjuggum á þeim tíma, og var biðin eftir lögreglunni nokkuð löng. Ég var sem sagt mætt á staðinn um það bil 45 mínútum á undan lögreglunni. Engin slys urðu á fólki né dýrum svo að það gerði ekkert til nema fyrir atvinnubílstjórann sem var hinn þáttakandinn í óhappinu að hann tafðist við vinnu sína.
Svo í nótt hringdi þessi elska hún dóttir mín í mömmu sína og sagði mér að hún hefði lent í slysi í Hvalfjarðargöngunum þegar hún var að koma heim frá Reykjavík.
Ég stökk auðvitað upp úr rúminu og út í bíl og brunaði af stað út í göng. Á leiðinni fékk ég annað símtal um að hún hefði fengið far hjá strákum sem komu á eftir henni og væri komin upp í veggjaldsskýlið og búin að hringja í lögregluna. Af augljósum ástæðum var ég AFTUR á undan lögreglunni enda fékk ég kallið fyrst. Í þetta skiptið virðist sem það hafi sprungið að framan hjá stelpunni og hún endasentist yfir akgreinarnar og eftir gangnavegginum hinu megin, stórskemmdi bílinn sinn. Hún meiddist ekkert og Akranes lögreglan var nokkuð fljót á staðinn og við mæðgurnar fórum niður í göngin í fylgd þeirra til að skoða og hún að gefa skýrslu um málið. Bíllinn var svo dreginn upp á pall á viðeigandi bifreið og fluttur til geymslu "úr umferð".
Mig langar til að þakka þessum strákum sem komu á vettvang fyrir að skutla stelpunni sem var í sjokki yfir slysinu upp úr göngunum og eins lögreglunni hérna á Akranesi fyrir fagleg vinnubrögð og þægilega framkomu við stelpuna.
Núna vonum við bara að þessu "klessu" tímabili fari að ljúka og hún verði aftur tjónlaus ökumaður eins og hún hafði verið fyrsta árið og rúmlega það.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Um bloggið
Haddý
33 dagar til jóla
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar