4.8.2008 | 17:26
Vel heppnuð verslunarmannahelgarútilega!!!
Jæja þá erum við Þröstur komin heim eftir yndislega veru í Þjórsárdal með Friðgeir og Árný sem lánuðu okkur tjaldvagninn sinn um helgina. Skelltum okkur af stað á föstudagsmorguninn, fyrst í bæinn og svo austur fyrir fjall og náðum í vagninn. Þegar við Þröstur komum svo í dalinn var fátt á staðnum og við fundum þessa líka fínu flöt fyrir bæði tjaldvagninn og fellihýsið hjá Friðgeir. Við vorum mest hissa á hvað var fátt alla helgina í Þjórsárdalnum. Veðrið var yndislegt, rigndi reyndar á laugadagskvöldið og fram á mánudagsnóttina. En við náðum þurru saman.
Á Laugardaginn fórum við á Flúðir, á Traktoratorfæruna. Hrein og klár skemmtun að horfa á gamla Zetora, Massa Ferguson og fleiri gamla jaska drullumalla sig hreinlega á bólakaf. Kíktum svo á Helga og Grétu í sumarbústað rétt hjá Flúðum.
Í rigningarúðanum á Sunnudaginn fórum við svo í bíltúr, út úr rigningunni og upp í Landmannalaugar, Landmannahelli og Ljótapoll.
Annars var þetta hin notalegasta leti helgi, fórum í sund í Reykjalaug. Grilluðum og höfðum það gott. Tjaldvagninn fékk að fljóta með á Skagann og spurningin er hvort að við Þröstur skellum okkur ekki bara í áframhaldandi útilegu í Borgarfjörðinn í vikunni.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Um bloggið
Haddý
33 dagar til jóla
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.